ÞJÓNUSTA
VIÐ ÞJÓNUSTUM JAFNT EINSTAKLINGA, FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
Starfsmenn okkar leggja sig fram við að veita viðskiptavinum persónulega og góða þjónustu. Hjá Lögmönnum Sundagörðum starfa lögmenn með víðtæka reynslu af öllum almennum lögfræðistörfum.
Meðal viðfangsefna stofunnar eru bankaréttur, erfðaréttur, félagaréttur, fasteignakauparéttur, forsjármál, innheimtur, leiguréttur, málflutningur, sakamál, samninga- og kröfuréttur, skattaréttur, sjávarútvegs- og hafréttarmálefni, skaðabótaréttur, kaupmálar, skilnaðarmál, skipti dánar- og þrotabúa, stjórnsýsluréttur, vátryggingaréttur, vinnuréttur, verjendastörf og verktakaréttur.
Markmið okkar er að veita viðskiptavinum faglega og persónulega þjónustu á öllum sviðum lögfræðinnar, hvort sem um er að ræða einstaklinga, fyrirtæki, opinberar stofnanir, sveitarfélög eða fjármálafyrirtæki hér á landi sem og erlendis
Skattaréttur
Lögmenn Sundagörðum veita einstaklingum og fyrirtækjum jafnt innanlands sem og erlendis heildstæða skattaráðgjöf, vegna beinna og óbeinna skatta, alþjóðlegs skattaréttar og tvísköttunarsamninga.
Skuldamál
Lögmenn Sundagörðum sérhæfa sig meðal annars í skuldamálum einstaklinga og fyrirtækja og búa yfir víðtækri og áralangri reynslu af hagsmunagæslu vegna skuldamála.
Félagaréttur
Lögmenn Sundagörðum búa yfir mikilli reynslu af málum er varða hlutafélög, einkahlutafélög og önnur félagaform. Yfirgripsmikil þekking starfsmanna tryggir hámarksárangur í málaflokknum.
Sakamál
Lögmenn Sundagörðum hafa mikla reynslu af verjendastörfum og málsmeðferð hjá lögreglu og fyrir dómstólum. Lögmenn Sundagörðum búa yfir víðtækri reynslu í gerð einkaréttarkrafna í opinberum málum og við hagsmunagæslu brotaþola.